13.6.2009 | 21:31
Sérbýli í sveit -sveitalyktin +sorpdaunn
Ein af afleiðingum botnlausrar þenslu undanfarinna ára eru svona skipulagsmistök/vanhugsun og maður leiðir hugann líka að þeim greyjum sem keyptu sér etv fúskaðan funkiskassa, í norðurhlíð í skjóli frá sólinni en ekki vindinum sem ber með sér ókræsilega lykt. Svo til að toppa ástandið er kofinn allur á myntkörfu, usssssss!.
Kannski hefði verið betra að stíga hægar til jarðar efnahagsmálum, bæði hjá almenningi og stjórnvöldum, kannski sérstaklega almenningi að kjósa þetta helvíti yfir sig og einblína á efnisleg gæði sem eru síðan bara eitthvað ílla smíðað drasl sem er ljótt og verður dottið úr tísku fljótlega.
Íbúarnir flýja inn vegna óþefs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Halló. Ég þarf að aka veginn á Álfsnesinu til vinnu á hverju degi og þá fer ég framhjá sorpinu. Álfnesið né vegurinn þar, varð ekki til hér í góðærinu, og þessi viðbjóðslega lykt af sorpinu þarf maður að anda að sér á hverjum degi. Ég hef ekki hugsað mér að skipia um vinnu, ég vinn á öldrunar og hjúkrunarheimili sem er staðsett niður við sjóinn. Það er löngu orðið tímabært að gera eitthvað í þessum sorpmálum Reykjavíkurborgar og kemur hvorki góðærinu né Leirvogsíbúðarhverfinu við.
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 13.6.2009 kl. 22:21
sammála þessu
kvartari, 13.6.2009 kl. 23:20
Sammála þér Guðbjörg. Hinsvegar var ég að benda samhengið með góðærið og leirvogshverfið er að þar sé skipulagt hverfi með sorpmálin í þessu ástandi og að þar skuli seljast lóðir. Það samhengi var ég að benda á. Engin spurning um að gera eitthvað í sorpmálum Reykjavíkurborgar.
smg, 13.6.2009 kl. 23:52
Miðað við framkvæmdahraðann, fjöldann af misvönum "iðnaðarmönnum" og fjöldann af misgóðum "byggingarverktökum" mun ég í framtíðinni forðast eins og heitan eldinn að kaupa nokkurt húsnæði sem byggt var á árunum 2000-2008.
Einar Steinsson, 14.6.2009 kl. 11:01
Einar: Já get hiklaust sem byggingameistari hvatt þig til að forðast húsnæði frá þessu tímabili. byggingalag húsa frá þessu tímabili er aðstæður á Íslandi og mjög miklar líkur á alvarlegum byggingagöllum í þeim. Þeir sem hyggjast kaupa hús frá þessum tíma þurfa að láta skoða þau mjög vel og/eða bjóða verð sem dekkar hugsanlegar viðgerðir.
smg, 14.6.2009 kl. 20:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.