Misheppnuð tilraun við að fylgja misheppnaðri hugmyndafræði

Nú er að koma í ljós um heim allan að frjálshyggjuhugmyndafræðin virkar ekki í praxis. Ekki frekar en kommúnisminn eða Nasisminn. Sjálfstæðisflokkurinn kom á  frjálshyggjuvæðingu í Íslensku þjóðfélagi. Frjálshyggjuvæðing felur þó það í sér að farið sé eftir grunnhugtökum hagfræðinnar. Sem þýðir að þegar vel gengur í atvinnulífinu, hækki skattar og að ríkið dragi úr framkvæmdum. Og síðan þegar dregst saman í atvinnulífinu kemur ríkið inn með skattalækkanir og fer í framkvæmdir. En hvað gerði Sjálfstæðisflokkurinn með Framsóknarflokkinn í pilsfaldinum í góðærinu? Fór í gegndarlausar framkvæmdir, ríki og sveitafélög sem og að lækka skatta. Þetta er hagstjórn þvert! á allar! kenningar hagfræðinnar!

Afleiðingin er efnahagslegt hrun á Íslandi sem er margfalt stærra en það sem er að gerast í kringum okkur.

Aðrar ástæður sem hafa ýtt undir þetta mikla fall, eru ólýðræðisleg vinnubrögð innan stjórnarflokkanna og í stjórnkerfinu. Það hefur aldrei mátt gagnrýna eða hlusta á ráðleggingar. Þau vinnubrögð eru svo sem dæmigerð fyrir stjórnmálaflokka sem aðhyllast öfgar, hvort sem þær eru til hægri eða vinstri.

Spilling er vegur þungt og er bæði orsök og afleiðing í þessu ferli. 

Það sem Íslenska þjóðin þarf á að halda, er að gerð verði almennileg breyting á stjórnarskránni sem tryggir raunverulega þrískiptingu valds. Hún þarf einnig að fara nýta sér hugtakið lýðræði og koma því á í öllu stjórnkerfinu, þ.m.t stjórnmálaflokkunum.


mbl.is „Flokkurinn þoli stór orð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú gott og blessað að ráðast á fólkið í flokknum sem var á vakt þegar hrunið dundi yfir, en er ekki líklegt að hugmyndafræðin hafi líka verið röng að einhverju leiti. Þetta, að flokkurinn hafi alltaf rétt fyrir sér,  en fólkið í flokknum sé haldið breiskleika, minnir svolítið á gömlu Sovétríkin og Kommonistaflokkinn þar á sínum tíma.

Guðlaugur Guðmundsson (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 10:03

2 identicon

SJÁLFSTAEDISFLOKKURINN BYGGIST Á HRAESNI OG HEFUR ÁVALT GERT.

HLUTVERK SJÁLFSTAEDISFLOKKSINS ER EINUNGIS EITT:

VERJA OG AUKA AUD THEIRRA RÍKU.  PUNKTUR.

SJÁLFSTAEDISFLOKKURINN SEGIST VERA FYRIR SAMKEPPNI.  HVERNIG GETUR THAD VERID SAMKEPPNI AD ÚTHLUTA ÚTVÖLDUM KVÓTA?

DAEMI UM HRAESNI SJÁLFSTAEDISFLOKKSINS:  VERKALÝDSNEFND SJÁLFSTAEDISFLOKKSINS.

DAEMI UM HRAESNI SJÁLFSTAEDISFLOKKSINS: STÉTT MED STÉTT

EKKI NOKKUR HUGSANDI MANNESKJA MED SJÁLFSVIRDINGU KÝS SJÁLFSTAEDISFLOKKINN.

RÉTT SKAL VERA RÉTT (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband