Grænlendingar eru ekki tilbúnir fyrir sjálfstæði

Ekki frekar en við held ég. Hvernig erum við búin að fara með sjálfstæðið? og hvernig höfum við nýtt okkur lýðræðið?

Ekki vel að mínu mati. Við erum búin að leyfa sömu flokkunum að vera samfleitt við völd nánast frá upphafi. Á meðan hafa þeir breyst úr því að vera "Sjálfstæðis" og "Bænda" flokkar, yfir í að vera gerspilltir hagsmunaflokkar. Spillingin veldur því að ekki er unnið að hagsmunum þjóðarinnar, eða unnið að uppbyggilegum málum í neinum geirum samfélagsins. Ísland er t.a.m ekki iðnvætt ríki þó að margir haldi annað. Efnahagsstjórnin er hlægileg og keyrð áfram af t.d álversframkvæmdum, sem skila síðan að byggingu þeirra loknum, litlu öðru en lágu orkuverði til stórra alþjóðlegra fyrirtækja og síðan klappi á koll ráðamanna frá þeim. Iðnaðar og þekkingarfyrirtæki fá ekki tækifæri til að vaxa, og þau sem fáu sem komast á legg eru helst flæmd úr landi. Það mætti halda að ríkjandi stjórnvldum liðinna ára sé ílla við að hér sé vel menntað og vel upplýst fólk, það gæti séð í gegn um þau og farið að kjósa aðra flokka!


mbl.is Bág staða barna á Grænlandi á borð Norðurlandaráðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband