150 fangelsisdóm fyrir útrásarvíkingana

Einfaldast að hafa þetta yfir línuna bara.


mbl.is Bankahrunið stærra en Enron
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki til hagkvæmari samgöngur

Það heimskulegasta sem hægt er að gera í t.d í svona árferði, er að byggja ekki upp almenningssamgöngur. 

Hægri armurinn hefur hinsvegar frá upphafi barist ötullega gegn almenningssamgöngum með öllum tiltækum ráðum. Ástæðan er svo að öfl sem flytja inn olíu, bifreiðar, jarðvegs og vegaverktakar og aðrir hagsmunaaðilar tengdir einkabílaiðnaðinum fái meiri hagnað af því, að almenningur sé háður einkabílnum. Þarna er dæmi um þegar stjórnvöld vinna ekki að heildarhagsmunum þjóðarinnar, en þjóna frekar fjársterkum hagsmunaaðilum. 

Sparnaður fyrir þjóðarbúið af því að hafa öflugar almenningssamgöngur, svo sem Jarðlestir, lestir kringum landið, öflugt strætókerfi og hjólastíga, eru slíkir að augljóslega hefur, vegna annarlega hagsmuna, ekki verið farið út í þróun þeirra. 

Þarna er ein ástæða fyrir að moka spillingunni burt :)


mbl.is Strætó í greiðsluþrot hefði ekkert verið að gert, segir Jórunn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirstrikar siðblindu Gunnars og Sjálfstæðisflokks

Það sem Gunnar fattar ekki er að fólk var búið að fá nóg af spillingunni löngu fyrir efnahags hrun, s.b.r blaðagreinar og almenn umfjöllun um m.a hans spilltu gjörðir. 

Nú er það svo að Spillingaröflin stjórna ekki landinu, vegna þess að fólk kýs þau ekki og því geta þau ekki verndað hann og hans líka.

 


mbl.is Allt tortryggilegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álit á D og B endanlega farið

Þeir sem kjósa þessa flokka verða þá að vera sáttir við að þessir flokkar vinna ekki í þágu borgarana heldur við að skara eld að eigin köku.

Fyrir mér er óhugsandi að kjósa aðra en þá sem vinna að heildarhagsmunum, en það virðist ekki eiga við í Kópavogi.

Í Kópavogi eru gjöld dýrari, vegir lélegri, laun lægri og þjónusta öll lakari en í sambærilegum sveitafélögum. Hvers vegna? Skildi það vera vegna spilltrar bæjarstjórnar? Hmmm.


mbl.is „Þetta jaðrar við brjálæði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mitt álit á D og B endanlega farið

Þeir sem kjósa þessa flokka verða þá að vera sáttir við að þessir flokkar vinna ekki í þágu borgarana heldur við að skara eld að eigin köku.

Fyrir mér er óhugsandi að kjósa aðra en þá sem vinna að heildarhagsmunum, en það virðist ekki eiga við í Kópavogi.

Í Kópavogi eru gjöld dýrari, vegir lélegri, laun lægri og þjónusta öll lakari en í sambærilegum sveitafélögum. Hvers vegna? Skildi það vera vegna spilltrar bæjarstjórnar? Hmmm.


mbl.is Framkvæmdaglaður bæjarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvítis fokking fokk!

það kostar að græða. Gróðinn af því að rafbílavæða Ísland yrði gífurlegur, fyrir þjóðina og umhverfið.
mbl.is Ekkert verður af kynningu á rafbílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að taka sumarfríið í nefið!

Stundum þegar menn ætla að taka hlutina með trompi þá enda hlutirnir ekki alltaf vel, greinilega.

Persónulega finnst mér meiri gæði fólgin í að líða áfram með umferðinni og stoppa reglulega, þegar ég er með tjaldvagninn í eftirdragi á ferðalagi.


mbl.is Ók framúr flugvélinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérbýli í sveit -sveitalyktin +sorpdaunn

Ein af afleiðingum botnlausrar þenslu undanfarinna ára eru svona skipulagsmistök/vanhugsun og maður leiðir hugann líka að þeim greyjum sem keyptu sér etv fúskaðan funkiskassa, í norðurhlíð í skjóli frá sólinni en ekki vindinum sem ber með sér ókræsilega lykt. Svo til að toppa ástandið er kofinn allur á myntkörfu, usssssss!.

Kannski hefði verið betra að stíga hægar til jarðar efnahagsmálum, bæði hjá almenningi og stjórnvöldum, kannski sérstaklega almenningi að kjósa þetta helvíti yfir sig og einblína á efnisleg gæði sem eru síðan bara eitthvað ílla smíðað drasl sem er  ljótt og verður dottið úr tísku fljótlega.


mbl.is Íbúarnir flýja inn vegna óþefs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Duglausar undirlægjur Birgis

Á undanförnum áratugum hafa stjórnmál þróast þannig á Íslandi að Framsóknarflokkur hefur fengið að fljóta með Sjálfstæðisflokki í stjórn. Hann hefur verið þægur og góður og fengið sína öruggu sneið af af spillingarkökunni. Fyrir það fyrsta hefði enginn alvöru stjórnmálaflokkur látið Sjálfstæðisflokk/GB komast upp með spillingu af þessu tagi, í svo mörg ár. Í öðru lagi endurspeglast nú hversu duglaus og hræddur Framsóknarflokkur er í afstöðu sinni til þessa máls, engin ákveðni ekkert þor.
mbl.is Framsókn vill að Gunnar hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrbræddur pappírstætari

Úrbræddur pappírstætari og myndarlegt fjall af tættum pappír mun hugsanlega valda því að sekt verði ekki sönnuð.


mbl.is Rannsókn leiði í ljós sakleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband